R a n n S Ó k n 1 Laeknadeild HÍ, 2 hjartaog lungnaskurðdeild, 3 svaefinga-og gjörgaesludeild, 4 hjartadeild Landspítala. inngangur: Markmiðið var að kanna langtímaárangur lokuskipta vegna ósaeðarlokuþrengsla á Íslandi. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin tók til 156 sjúklinga (meðalaldur 71,7 ár, 64,7% karlar) sem gengust undir ósaeðarlokuskipti vegna ósaeðarlokuþrengsla á Landspítala 2002-2006. Gerviloku var komið fyrir hjá 29 sjúklingum en lífraenni loku hjá 127. Skráðir voru langtímafylgikvillar og innlagnir tengdar aðgerðinni fram til 1. apríl 2010. Stuðst var við sjúkraskrár og stofunótur sérfraeðinga. Einnig var farið yfir hjartaómanir við eftirfylgd, reiknuð út heildarlifun og hún borin saman við meðallifun Íslendinga af sama aldri og kyni. niðurstöður: Meðal EuroSCORE (st) fyrir aðgerð var 6,9%, hámarksþrýstingsfall yfir lokuna 74,1 mmHg og útfallsbrot vinstri slegils (EF) 57,2%. Hálfu ári eftir aðgerð maeldist hámarksþrýstingsfall yfir nýju lokuna 19,8 mmHg (bil 2,5-38,0). Ómskoðun við eftirlit hjá hjartalaekni vantaði hjá taepum fjórðungi sjúklinga. Á eftirlitstímanum var rúmur fjórðungur sjúklinga lagður inn vegna vandamála sem tengdust lokunni. Tíðni endurinnlagna var 6,0/100 sjúklingaár. Algengustu ástaeður endurinnlagna voru hjartabilun (1,7/100 sjúklingaár), blóðsegarek (1,6/100 sjúklingaár), blaeðing (1,6/100 sjúklingaár), hjartaþelsbólga (0,7/100 sjúklingaár) og hjartadrep (0,4/100 sjúklingaár). Eins og fimm ára lifun eftir aðgerð var 89,7% og 78,2% og reyndist sambaerileg við lifun Íslendinga af sama aldri og kyni. Ályktun: Tíðni langtímafylgikvilla eftir ósaeðarlokuskipti hér á landi er svipuð og erlendis. Langtímalifun er góð og sambaerileg við lifun einstaklinga af sama kyni og aldri sem ekki gengust undir ósaeðarlokuskipti.