Yfirfaersla á málaflokki fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga: Með sérstakri áherslu á staersta sveitarfélagið, ReykjavíkFreydís Jóna Freysteinsdóttir, dósent við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands Gylfi Jónsson, félagsráðgjafi hjá Barnavernd Reykjavíkur ÚtdrátturMarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvernig yfirfaersla á málaflokki fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga hefði gengið fyrir sig. Heildarferli yfirfaerslunnar var skoðað og síðan var eitt sveitarfélag, Reykjavíkurborg, valið og skoðað nánar með tilliti til stefnu og framkvaemdar á þjónustunni við fatlað fólk. Um var að raeða eigindlega rannsókn sem fór fram haustið 2012. Tekin voru átta viðtöl við fagaðila sem höfðu komið beint að vinnu við yfirfaersluna eða unnið við málaflokkinn fyrir og eftir yfirfaerslu. Tekið var viðtal við starfsmenn hjá velferðarráðuneytinu og hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar eru sex talsins, eitt viðtal var tekið á hverri þjónustumiðstöð og leitast var við að fá viðmaelanda sem var hvað mest inni í málaflokknum. Helstu niðurstöður voru þaer að viðmaelendur töldu almennt séð rétt að ráðist skyldi hafa verið í yfirfaersluna. Þeir töldu að þjónusta í naersamfélaginu vaeri heppilegri kostur og nú þyrfti þjónustuþeginn aðeins að fara á einn stað til þess að saekja sér þjónustu, jafnvel þó að ekki hefðu orðið eins miklar framfarir í þjónustunni og búist hefði verið við. Þeir töldu þó að töluvert fjármagn vantaði í málaflokkinn til að tryggja viðeigandi þjónustu og að yfirfaerslan hefði ekki verið naegilega vel undirbúin. Viðmaelendur voru á því að þverfagleg vinna gengi vel í málaflokknum.
scite is a Brooklyn-based organization that helps researchers better discover and understand research articles through Smart Citations–citations that display the context of the citation and describe whether the article provides supporting or contrasting evidence. scite is used by students and researchers from around the world and is funded in part by the National Science Foundation and the National Institute on Drug Abuse of the National Institutes of Health.
hi@scite.ai
10624 S. Eastern Ave., Ste. A-614
Henderson, NV 89052, USA
Copyright © 2024 scite LLC. All rights reserved.
Made with 💙 for researchers
Part of the Research Solutions Family.