“…Þó ber að hafa í huga að nemendur í bóknámi í blönduðu skólunum voru almennt laegri í þessum þáttum en nemendur í flestum bóknámsskólum. Sýnt hefur verið fram á að þeir þaettir sem niðurstöðurnar tóku til ýta undir og endurskapa félagslega lagskiptingu og hafa með því áhrif á framtíðarhorfur ungmenna þegar horft er til menntunar og stöðu á vinnumarkaði (Dubow o.fl., 2009;Emil Dagsson o.fl., 2020; Rannsóknir sýna að nemendur með sterkari félags-og efnahagslegan bakgrunn hafi betri aðgang að upplýsingum, aðstoð, úrraeðum og valmöguleikum í gegnum sterkara tengslanet (Ball o.fl., 1996;Ball og Vincent, 1998;Connell, 2013;Dovemark o.fl., 2018;Dovemark og Rasmussen, 2022;Horvat o.fl., 2003). Þannig má fullyrða að félags-og efnahagslegur bakgrunnur nemenda innan ákveðinna bóknámsskóla og námsleiða viðhaldi og styrki þá lagskiptingu sem fyrir er innan kerfisins.…”